April 7, 2026
Umsóknarfrestur til 22. mars

GHD auglýsir eftir vallarstjóra/rekstrarstjóra í 100% starf. Helstu verkefni eru:
- Daglegt eftirlit með ástandi brauta, flata, teiga, glompa og annarra leiksvæða.
- Sláttur, loftun, sáning, áburðargjöf og önnur hefðbundin golfvallastörf.
- Umsjón með tækjum og vökvunarkerfi
- Skipulagning og stjórnun starfsfólks.
- Undirbúningur vallar fyrir mót og viðburði.
- Samskipti við aðila sem tengjast rekstri klúbbsins s.s. samstarfsaðila, styrktaraðila, birgja og verktaka.
Kröfur
- Menntun í grasvallafræðum eða haldgóð reynsla af vinnu á golfvelli nauðsynleg
- Skipulagshæfni og ábyrg vinnubrögð.
- Færni í meðferð vinnuvéla.
- Sjálfstæð vinnubrögð og færni í mannlegum samskiptum
Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn skili meira vinnuframlagi en sem nemur heilu starfi yfir sumartímann en minna yfir veturinn í staðinn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Jóhann Valdimarsson formaður GHD í síma 862-8283 eða á ghd@simnet.is.
Umsóknarfrestur til 22. mars