April 8, 2026

Enn er laus staða vallarstjóra

Ekki fengum við neinn í starf vallarstjóra/rekstrarstjóra. Svo nú leitum við að áhugasömum einstaklingi til að gegna starfi vallarstjóra hjá okkur í sumar. Er ekki einhver reynslubolti þarna úti sem langar að breyta til og koma til okkar?


Helstu verkefni

  • Daglegt eftirlit með ástandi brauta, flata, teiga, glompa og annarra leiksvæða.
  • Sláttur, loftun, sáning, áburðargjöf og önnur hefðbundin golfvallastörf.
  • Umsjón með tækjum og vökvunarkerfi
  • Skipulagning og stjórnun starfsfólks.
  • Undirbúningur vallar fyrir mót og viðburði.


Kröfur

  • Menntun í grasvallafræðum eða haldgóð reynsla af vinnu á golfvelli nauðsynleg
  • Skipulagshæfni og ábyrg vinnubrögð.
  • Færni í meðferð vinnuvéla.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og færni í mannlegum samskiptum


Gert er ráð fyrir að starfstíminn sé ca. 1. maí til 15. október

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Jóhann Valdimarsson formaður GHD í síma 862-8283 eða á ghd@simnet.is.

Umsóknarfrestur til 7. apríl