April 13, 2026

Helgi Snær Björgvinsson ráðinn vallarstjóri

Helgi Snær Björgvinsson hefur verið ráðinn vallarstjóri á Arnarholtsvelli. Helgi er menntaður húsasmiður og búfræðingur auk þess sem hann hefur töluverða reynslu að golfvallastörfum þar sem hann hefur unnir þó nokkur ár á Hvaleyrarvelli hjá golfklúbbnum Keili. Helgi er öllum hnútum kunnugur í golfinu eftir að hafa verið afrekskylfingur í 10 ár og æft og keppt við topp aðstæður. Við bjóðum Helga hjartanlega velkominn til starfa og hlökkum til að vinna með honum.