April 6, 2026
Meistaramót GHD í Trackman 2026

Tímabil: 12. mars – 19. apríl
Spilaðir eru 3 hringir á eftirfarandi völlum:
• 1. Eaglewood (drive á 3. holu)
• 2. Cabot Links (drive á 11. holu)
• 3. Fieldstone (drive á 10. holu)
Flokkar (TrackMan forgjöf)
Karlar – forgjöf 12 og undir
Karlar – forgjöf 12,1 og yfir
Konur – forgjöf 15 og undir
Konur – forgjöf 15,1 og yfir
Karlar – Öldungaflokkur
Konur – Öldungaflokkur
(ATH öldungaflokkarnir eru í sér móti)
Verðlaun fyrir efsta sæti í hverjum flokki: 5 skipti í golfhermi GHD
Verðlaun fyrir lengsta drive á völdum holum í hverju móti í boði Kalda.
Skilmálar og skráning:
Keppendur verða að vera í GHD.
Keppendur þurfa að vera með virka TrackMan forgjöf með minnst 2 gildandi hringjum.
Engin skráning í mótið – mikilvægt að kyn sé skráð í TrackMan appinu (Settings → Profile Settings → Male/Female).
Ekkert mótsgjald, aðeins hermagjaldið.
Hægt er að spila mótið undir Tournaments í herminum.
Hægt er að spila alla 3 hringina hvenær sem er á tímabilinu.
Leikfyrirkomulag: Höggleikur án forgjafar.
Gangi ykkur vel og góða skemmtun!