November 16, 2026
Aðalfundur GHD 2026
Aðalfundur Golfklúbbsins Hamars verður haldinn í inniaðstöðunni í Víkurröst miðvikudaginn 2. desember kl. 17. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Þeir sem áhuga hafa á að gefa kost á sér í stjórn eru beðnir um að hafa samband við Gísla Bjarnason formann uppstillingarnefndar fyrir 25. nóvember.
Dagskrá
1) Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
2) Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
3) Umræður og atkvæðagreiðsla um árgjald samkv. 4. gr.
4) Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
5) Kosnir tveir endurskoðendur og einn til vara.
6) Lagabreytingar
7) Önnur mál.